Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 20:27
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikin: Umdeildir vítaspyrnudómar
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það er mikið fjör í undanúrslitaleik Meistaradeildarinnar sem er í gangi þessa stundina þar sem PSG og Bayern etja kappi.

Þetta hefur verið mjög erfiður leikur að dæma fyrir Sandro Schärer frá Sviss og gaf hann tvær vítaspyrnur í fyrri hálfleik, sem er hægt að sjá hér fyrir neðan.

   28.04.2026 20:11
„Held að við komumst ekki hærra né lengra í okkar íþrótt“


Í fyrra atvikinu var Willian Pacho dæmdur brotlegur fyrir tæklingu innan vítateigs og í seinna atvikinu dæmdi Schärer vítaspyrnu fyrir hendi á Alphonso Davies.

Pacho náði snertingu á boltann í tæklingunni sinni en fór í leiðinni í Luis Díaz, sem virðist þó hafa fiskað snertinguna með hreyfingu til að skýla boltanum.

Sjáðu atvikið

Harry Kane skoraði opnunarmark leiksins úr vítaspyrnunni en Khvicha Kvaratskhelia jafnaði eftir glæsilegt einstaklingsframtak áður en Joao Neves kom heimamönnum yfir með skalla eftir hornspyrnu.

Michael Olise skoraði frábært jöfnunarmark eftir einstaklingsframtak áður en umdeildasta atvikið leit dagsins ljós. Schärer dómari ætlaði ekki að dæma upphaflega en hann var sendur í skjáinn af kollegum sínum í VAR-herberginu.

Eftir athugun í skjánum ákvað Schärer að dæma víti. Fyrirgjöf frá hægri kanti fór af líkama Davies og í höndina hans, en það gerist ekki oft að vítaspyrna er dæmd eftir að boltinn fer fyrst af líkama leikmanns og þaðan í hendi.

Sjáðu atvikið

Ousmane Dembélé skoraði af vítapunktinum svo staðan var 3-2 í leikhlé.

Núna eru rúmar 60 mínútur búnar af leiknum og hafa heimamenn í PSG bætt tveimur mörkum við í seinni hálfleik, svo staðan er 5-2 þegar þessi frétt er skrifuð.

   28.04.2026 20:10
Fimm mörk í rosalegum fyrri hálfleik

Slapp
banner
banner
banner