lau 28. maí 2022 15:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjudeildin: Öruggt hjá Gróttu og dramatík á Ísafirði
Lengjudeildin
Kjartan Kári Halldórsson
Kjartan Kári Halldórsson
Mynd: Raggi Óla

Þremur leikjum var að ljúka í Lengjudeildinni í dag.G


Það var líf og fjör hjá Gróttu sem tóku á móti nýliðum KV sem enn hafa ekki náð í stig. Grótta komst í þriggja marka forystu undir lok fyrri hálfleiks en Kjartan Kári Halldórsson skoraði tvö og Óliver Dagur Thorlacius skoraði eitt.

Grímur Ingi Jakobsson minnkaði muninn á loka mínútu fyrri hálfleiks.

Patryk Hryniewicki leikmaður KV var rekinn útaf eftir rúmlega klukkutíma leik við mikinn ófögnuð KV manna eftir brot á Kjartani Kára og vítaspyrna dæmd. Hann steig sjálfur á punktinn og skoraði þrennuna.

Oddur Ingi Bjarnason misnotaði síðan vítaspyrnu fyrir KV áður en Sigurður Hrannar Þorsteinsson negldi síðasta naglann í kistu KV manna. 5-1 lokatölur.

Grindavík lagði Fylki með einu marki gegn engu en það var Kristófer Páll Viðarsson sem skoraði markið eftir tæplega klukkutíma leik.

Það var Dramatík í leik Vestra og Þórs á Ísafirði þar sem gestirnir voru með 3-2 forystu þegar 90 mínútur voru komnar á klukkuna en þá fékk Vestri hornspyrnu. Fyrirgjöf og Chechu Meneses stökk hæst og skallaði boltann í netið og bjargaði stigi fyrir heimamenn.

Vestri 3 - 3 Þór
0-1 Harley Bryn Willard ('12 )
1-1 Nicolaj Madsen ('19 )
2-1 Aron Birkir Stefánsson ('22 , sjálfsmark)
2-2 Nikola Kristinn Stojanovic ('43 )
2-3 Harley Bryn Willard ('74 )
3-3 Jesus Maria Meneses Sabater ('90 )

Lestu um leikinn

Grótta 5 - 1 KV
1-0 Kjartan Kári Halldórsson ('24 , víti)
2-0 Kjartan Kári Halldórsson ('38 )
3-0 Óliver Dagur Thorlacius ('40 )
3-1 Grímur Ingi Jakobsson ('45 )
4-1 Kjartan Kári Halldórsson ('62 , víti)
4-1 Oddur Ingi Bjarnason ('75 , misnotað víti)
5-1 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('85 )
Rautt spjald: Patryk Hryniewicki, KV ('61) Lestu um leikinn

Grindavík 1 - 0 Fylkir
1-0 Kristófer Páll Viðarsson ('57 )

Lestu um leikinn


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner