Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   fim 28. maí 2026 11:30
Elvar Geir Magnússon
James í kólumbíska HM hópnum þrátt fyrir veikindin
James Rodriguez.
James Rodriguez.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Hinn 34 ára gamli James Rodriguez hefur verið valinn í HM-hópinn hjá Kólumbíu þrátt fyrir að hafa verið að glíma við veikindi á tímabilinu.

Eðli þessara veikinda hafa ekki verið gefin upp en hann byrjaði aðeins tvo af fimmtán MLS-leikjum Minnesota United, alls lék hann 194 mínútur.

James er þekktasti leikmaður Kólumbíu og er fyrrum leikmaður Real Madrid, Bayern München og Everton. Hann vann gullskóinn á HM 2014.

Hann var lagður inn á sjúkrahús í mars eftir 3-1 tap Kólumbíu gegn Frakklandi og var í þrjá daga undir eftirliti með alvarlega ofþornun.

Kólumbía er með Úsbekistan, Kongó og Portúgal í riðli á HM. Hér má sjá hópinn:

Markverðir: Camilo Vargas (Atlas), Alvaro Montero (Velez Sarsfield), David Ospina (Atletico Nacional)

Varnarmenn: Davinson Sanchez (Galatasaray), Jhon Lucumi (Bologna), Yerry Mina (Cagliari), Willer Ditta (Cruz Azul), Daniel Munoz (Crystal Palace), Santiago Arias (Independiente), Johan Mojica (Mallorca), Deiver Machado (Nantes)

Miðjumenn: Richard Rios (Benfica), Jefferson Lerma (Crystal Palace), Kevin Castano (River Plate), Juan Camilo Portilla (Athletico Paranaense), Gustavo Puerta (Racing de Santander), Jhon Arias (Palmeiras), Jorge Carrascal (Flamengo), Juan Fernando Quintero (River Plate), James Rodriguez (Minnesota United), Jaminton Campaz (Rosario Central)

Sóknarmenn: Juan Camilo Hernandez (Real Betis), Luis Diaz (Bayern Munich), Luis Suarez (Sporting), Carlos Andres Gomez (Vasco da Gama), Jhon Cordoba (Krasnodar)

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner
banner