Fotbolti.net
28.06.21 - 10:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Þjálfari Glódísar til Arsenal (Staðfest) - Slegers tekur við Rosengård

Eidevall

Eidevall

Canon

Mynd: EPA

Kvennaboltinn
Hinn 38 ára gamli Jonas Benjamin Eidevall var í dag tilkynntur sem nýr þjálfari kvennaliðs Arsenal. Hann tekur við liðinu af Joe Montemurro.

Arsenal endaði í 3. sæti í ensku ofurdeildinni á liðnu tímabili. Eidevall hefur þjálfað lið Rosengård í Svíþjóð undanfarin ár.
Eidevall stýrði Rosengård til sigurs í sænsku deildinni tímabilin 2013, 2014 og 2019 og liðið varð einnig bikarmeistari undir hans stjórn árið 2018.

Eidevall var aðstoðarþjálfari Henrik Larsson hjá Helsingborg áður en hann tók aftur við Rosengård fyrir tímabilið 2018.

Glódís Perla Viggósdóttir hefur leikið undir stjórn Eidevall síðustu tímabil og Sara Björk Gunnarsdóttir gerði það einnig á sínum tíma.

Eitthvað hefur verið rætt um mögulegt næsta skref á ferli Glódísar og verður fróðlegt að sjá hvort Jonas reyni að fá hana yfir til Arsenal. Glódís varð 26 ára í gær.

Renée Slegers hefur verið tilkynnt sem nýr þjálfari Rosengård. Renée er hollensk og hefur stýrt LB07 undanfarin ár. Hún er 32 ára gömul.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.