Fotbolti.net
28.06.21 - 19:32
Brynjar Ingi Erluson

Jakob Franz keyptur til Venezia (Staðfest)

Jakob Franz Pálsson í leik með Venezia

Jakob Franz Pálsson í leik með Venezia

Canon

Mynd: Heimasíða Venezia

Ítalska félagið Venezia hefur gengið frá kaupum á Jakobi Franz Pálssyni frá Þór en hann gerir þriggja ára samning við A-deildarliðið. Þetta kemur fram á Akureyri.net.
Jakob, sem er 18 ára gamall, var lánaður frá Þór til Venezia snemma á þessu ári og var ítalska félagið með forkaupsrétt á honum.

Hann æfði og spilaði með unglinga- og varaliði Venezia en vegna kórónuveirunnar gat hann ekki æft með aðalliðinu þar sem það mátti ekki blanda leikmannahópum saman.

Venezia hefur nú ákveðið að nýta forkaupsréttinn og var gengið frá kaupunum á dögunum.

Hann skrifar undir þriggja ára samning við félagið og er afar sáttur með að þetta sé í höfn.

„Ég er ekkert eðlilega ánægður! Það hefur auðvitað verið draumur lengi að komast í atvinnumennsku og því er algjör snilld að búið sé að ganga frá þessu," sagði Jakob við Skapta Hallgrímsson hjá Akureyri.net.

Heimild: Akureyri.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.