Fotbolti.net
28.06.21 - 18:17
Brynjar Ingi Erluson

Parker hættur með Fulham (Staðfest) - Tekur við Bournemouth

Scott Parker er hættur með Fulham og er að taka við Bournemouth

Scott Parker er hættur með Fulham og er að taka við Bournemouth

Canon

Mynd: Getty Images

Enska B-deildarfélagið Fulham hefur staðfest að Scott Parker er hættur með liðið en hann er að taka við Bournemouth.
Parker lagði skóna á hilluna árið 2017 en hann spilaði síðustu fjögur ár ferilsins með Fulham.

Hann tók við sem knattspyrnustjóri liðsins tveimur árum síðar er liðið var í 19. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og féll liðið í kjölfarið niður í B-deildina.

Ári síðar kom hann liðinu aftur upp í deild þeirra bestu. Fulham átti afar erfitt tímabil í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og féll aftur niður um deild en Parker kallaði eftir breytingum hjá klúbbnum.

Hann hefur verið orðaður við stjórastöðuna hjá Bournemouth síðustu vikur og í dag staðfesti Fulham að Parker yrði ekki áfram og væri hættur með liðið.

Það er fastlega gert ráð fyrir því að hann verði kynntur sem nýr stjóri Bournemouth á næstu dögum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.