Fotbolti.net
28.06.26 - 20:02
Viktor Ingi Valgarðsson

Jói Kalli svekktur og pirraður eftir leik - Ræðir einnig gluggann

Auglýsing
Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH

Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leik FH og ÍBV lauk með 1-1 jafntefli liðana í baráttu miklum leik. FH liðið leiddi eftir fyrri hálfleik en misstu það strax í upphafi seinni. Úr varð frekar kröftugur leikur en hvorugt liðið kom sigurmarkinu og gangi því bæði lið með eitt stig frá velli.

Jóhannes Karl einnig þekktur sem Jói Kalli var til taks eftir leik að ræða leikinn og nýju andlitin sem eru væntanlega í FH liðið. 

Lestu um leikinn: FH 1 - 1 ÍBV

„Ég er drullu svekktur, fannst við verðskulda sigurinn í dag og gerðum mikið meira en nóg til að vinna þennan leik. Gefum þeim náttúrulega mark, einsog við gáfum vítið sem varð til þess að við vinnum ekki Þórsleikinn. Það er bara drullupirrandi."

„Frammistaðan að mörgu leiti góð og mikill andi í liðinu, vissum að ÍBV myndi mæta af miklum krafti  þeir eru í góðu standi og hafa verið á runni. Þannig við ætluðum gjörsamlega að mæta því af fullum krafti. Sem mér fannst við gera, drullusvekkjandi að vinna hann ekki."

„Mér fannst við geta verið 2-0 í fyrri hálfleik, fengum fín færi til að skora og auka forustuna. Því miður er 1-1 niðurstaðan og mér finnst það ekki verðskuldað."

Leikurinn í dag og tveir síðustu voru margir búnir að merkja til að raunverulega sjá hvar FH liðið mun standa á tímabilinu. Uppskeran úr þessum þremur leikjum er 5stig og Jói Kalli var spurður hvort það sé ásættanlegt. „Nei ég hefði verið sáttur með 7stig. Fimm stig eru of lítið en við getum ekki breytt því núna. Þetta er nokkuð þéttur pakki neðri hluti deildarinnar."

FH hefur nú þegar hafist handa á leikmanna markaðnum og Oliver Stefánsson og Guðmundur Andri Tryggvason spila með FH þegar glugginn opnar þann 16.júlí. „Þeir eru byrjaðir að æfa með okkar, fínt að geta fengið þá svona tiltölulega snemma inn til að kynnast hópnum og leikstílnum. Þeir verða frábær viðbót fyrir okkar inn í seinni hluta sumarsins. 

Einnig framlengdu FH samninginn við Gils Gíslason sem hefur verið flottur hjá FH hingað til. „Gils var því miður veikur í dag og gat ekki verið með okkur. En það er ánægjulegt að hann sé búin að framlengja. Við erum með fullt af ungum og skemmtilegum leikmönnum sem eru að koma upp.

„Við þurfum að fókusa á það að geta styrkt okkur núna þegar glugginn opnar með leikmönnum sem að henta okkar leikstíl og því sem við erum og viljum gera. Það er aldrei að vita nema það komi fleiri leikmenn inn."

„Þetta eru þung högg í magann þessi jafntefli, við ætlum okkur að hafa áhrif á hvernig næsti leikur fer hér heima gegn Stjörnunni."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.