Fotbolti.net
28.06.26 - 20:32
Viktor Ingi Valgarðsson

Linta: „Verð að vera sáttur" - Vantaði nokkra leikmenn og stjórnin mun bregðast við ef þörf er á

Auglýsing
Aleksandar Linta þjálfari ÍBV

Aleksandar Linta þjálfari ÍBV

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ferð ÍBV í Kaplakrikan lauk með 1-1 jafntefli gegn FH í dag. Leikurinn var partur af 12.umferð Bestu Deildar karla. Uppgangur ÍBV heldur áfram og var þetta fimmti leikurinn í röð hjá Eyjamönnum þar sem þeir tapa ekki en liðið er komið fimm stigum frá fallsæti að svo stöddu.

Lestu um leikinn: FH 1 - 1 ÍBV

Aleksandar Linta þjálfari ÍBV hafði þetta um leik dagsins að segja.

„Ég verð að vera sáttur með niðurstöðuna. Líka með einhver móment í leiknum. Við byrjuðum leikinn ekki vel, við vorum sloppy og orkan ekki góð. Margt sem var ekki gott svona fyrsta korter."

„Fyrstu viðbrögð bara að þetta séu sanngjörn úrslit, bæði lið áttu skot í stöng, einhver færi en ekki mikið af opnum færum."

 Þrír sigrar og tvö jafntefli í síðustu fimm leikjum hjá ÍBV. „Við vorum á sex leikja taphrinu þannig við viljum breyta því í sex ekki töp í röð."

Omar Sowe hefur hægt og rólega verið að komast í liðið, náði 45mínútum í dag og skoraði eina mark ÍBV strax í upphafi seinni hálfleiks. „Omar eins og þú veist var meiddur lengi og er gæða leikmaður. Hann kemur með helling fyrir okkur, þurfti bara einhverjar 60sek til að skora. Sérstaklega á þessari tegund af velli þá er hann ekki alveg tilbúin."

Sigurður Arnar Magnússon einn að lykilmönnum ÍBV var ekki í hóp í dag en hann fékk höfuðhögg í lok síðasta leiks. Hann er meiddur og læknirinn sagði honum að hvíla aðeins. Okkur vantaði nokkra leikmenn: Siggi, Tomic, Dóri og Hermann eru ekki með. En aðrir koma inn og ég er glaður fyrir þá."

Leikmannaglugginn opnar eftir tvo leiki hjá ÍBV eða þann 16.júlí. „Stjórnin sér um þær aðstæður, ég held að ef við finnum eitthvað sem hentar okkur þá munu þeir bregðast við og styrkja liðið fyrir seinni hluta tímabilsins."

Næsti leikur er gegn Val í Vestmannaeyjum. „Líka mjög erfiður leikur, við trúum á okkur sjálfa, áttum góðan leik gegn þeim en töpuðum. Reynum að ná í sömu frammistöðu en aðeins öðruvísi niðurstöðu og þá verð ég sáttur."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér í spilaranum að ofan.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.