Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 28. júlí 2021 18:18
Elvar Geir Magnússon
Jósef Kristinn tekur skóna af hillunni - Byrjar í Grafarvogi
Jósef Kristinn í leik með Stjörnunni.
Jósef Kristinn í leik með Stjörnunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bakvörðurinn Jósef Kristinn Jósefsson hefur tekið skóna af hillunni og er í byrjunarliði Grindavíkur sem mætir Fjölni í Lengjudeildinni í kvöld.

Jósef Kristinn sem er 31 árs er uppalinn hjá Grindavík en lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil með Stjörnunni.

Hann hefur verið að æfa með Grindvíkingum að undanförnu.

Grindvíkingar hafa verið að gefa eftir að undanförnu en eru í fimmta sæti Lengjudeildarinnar, sex stigum frá öðru sæti, og þurfa á sigri að halda í kvöld. Grindavík er með 20 stig, líkt og Fjölnir.

Í Innkastinu í vikunni var sagt að Bjarni Ólafur Eiríksson, fyrrum leikmaður Vals, væri að æfa með Grindvíkingum. Spurning hvort hann muni líka taka skóna af hillunni?

Leikur Fjölnis og Grindavíkur hefst 19:15.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner