Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   mið 28. júlí 2021 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Neitaði samningi hjá Liverpool og skrifaði undir hjá Man Utd
Mynd: Instagram
Ethan Ennis er genginn í raðir Manchester United en hann yfirgaf unglingastarf Liverpool í sumar.

Ennis var í viðræðum við Chelsea og Manchester United eftir að hafa neitað tilboði frá Liverpool.

Ennis opinberaði samkomulagið við Manchester United með því að birta mynd af sér á Old Trafford haldandi á treyju merktri sér.

Liverpool á inni uppeldisbætur frá Man Utd vegna skiptanna.

Ennis er sextán ára miðjumaður og mun væntanlega æfa og spila með U18 liði United í vetur.
Slapp
banner
banner