Landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson var á skotskónum í dag þegar hollenska liðið AZ Alkmaar bar sigur úr býtum í æfingaleik gegn gríska liðinu OFI Crete.
Albert kom AZ yfir í leiknum með fínu marki sem má sjá neðst í fréttinni.
AZ bætti svo við öðru marki í seinni hálfleiknum og lokatölur 2-0 fyrir hollenska liðinu.
Albert, sem er 24 ára, hefur verið hjá AZ frá 2018. Þar áður lék hann með unglingaliðum Heerenveen og PSV Eindhoven. Á síðasta tímabili átti hann fínasta tímabil er AZ hafnaði í þriðja sæti hollensku úrvalsdeildarinnar.
Hér að neðan má sjá mörkin úr leiknum í dag.
Athugasemdir