Fotbolti.net
28.07.26 - 14:14
Fótbolti.net

Slagurinn um toppsætið - Fjórir ferskir til að fylgjast með

Toppslagur Lengjudeildarinnar verður 19:45 á miðvikudagskvöld.

Toppslagur Lengjudeildarinnar verður 19:45 á miðvikudagskvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Tvö efstu lið Lengjudeildarinnar mætast á AVIS-vellinum í Laugardal annað kvöld, miðvikudag, klukkan 19:45. Stórleikur í baráttunni um að ná efsta sætinu í deildinni, því eina sem gefur beint sæti í Bestu deildinni.

Leikurinn er í 16. umferð deildarinnar, Afturelding er á mikilli sigurbraut og er á toppnum með 31 stig, stigi á undan Þrótti sem getur hrifsað efsta sætið. Mosfellingar eiga leik til góða. Það má fastlega búast við hörkuleik.

Í sérstakri upphitun fyrir leikinn skoðum við fjóra unga leikmenn sem við mælum með að fólk fylgist með í leiknum, leikmenn sem eru kannski ekki alltaf mest í umræðunni.


Fjórir til að fylgjast með

Örn Bragi Hinriksson - Þróttur (18 ára)
Sóknarmaður sem veldur miklum usla með hlaupum bæði með og án bolta. Óútreiknanlegur í kringum teig andstæðingana og með einstakt lag fyrir því að koma sér í færi og skora mörk. Vinnur auk þess vel fyrir liðið varnarleik bæði í pressu og með hlaupum til baka. - Er kominn með sex deildarmörk á tímabilinu.

Fyrr í þessum mánuði var greint frá því að Örn Bragi yrði líklega leikmaður KR eftir tímabilið.

Örn Bragi fer líklega í KR
TENGT EFNI

Örn Bragi fer líklega í KR



Óðinn Bjarkason - Afturelding (20 ára)
Ákveðinn X-faktor leikmaður sem getur alltaf 'poppað upp' og skilar mörkum og stoðsendingum í hverjum einasta leik þó hann sé ekki alltaf mest áberandi í spilinu. Áhættusækinn, með góðan hægri fót, fljótur og teknískur kantmaður sem getur gert gæfumun í leikjum.

Óðinn hefur skorað ellefu mörk í Lengjudeildinni á tímabilinu en aðeins Dominik Radic (tólf) í HK hefur skorað fleiri.


Brynjar Gautur Harðarson - Þróttur (22 ára)
Spennandi miðjumaður sem er lykilmaður í sóknarleik Þróttar þegar kemur að því halda í boltann og dreifa spili með stuttum sendingum. Fáir leikmenn ef einhver í deildinni sem missa boltann sjaldnar undir pressu. Einstaklega klókur í staðsetningum varnarlega og frábær í návígjum varnarlega, ver vörn Þróttara frábærlega.

Brynjar Gautur var valinn í úrvalslið umferð 1-11 í deildinni.


Bjartur Bjarmi Barkarson - Afturelding (24 ára)
Annar sem var líka í liði 1-11. Magnaður miðjumaður og í raun furðulegt að hann hafi ekki verið orðaður meira við lið í Bestu deildinni. Mikill íþróttamaður með lágan jafnvægispunkt, sterkur, kraftmikill og með öfluga hlaupagetu. Frábær að vinna milli línanna. Á oft lykilsendingar en getur bætt við sig mörkum og stoðsendingum til að taka næstu skref.

Bjartur Bjarmi er frá Ólafsvík og hefur leikið með Aftureldingu síðan tímabilið 2023.



Upphitun á Ölveri
Sportbarinn Ölver í Glæsibæ verður með sérstaka upphitun fyrir leikinn og hefst hún klukkan 17:00. Drykkir á gleðistundarverði.



Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fyrri viðureignin í sumar
Liðin mættust í 5. umferð í Mosfellsbæ, þann 22. maí. Vonandi verður sama fjör í komandi leik og var þá. Elmar Kári Enesson Cogic skoraði tvívegis í 4-3 sigri Aftureldingar. Óðinn Bjarkason skoraði sigurmarkið og Bart Kooistra skoraði einnig fyrir Mosfellinga. Sigurður Egill Lárusson skoraði tvö mörk fyrir Þróttara en hann er sem stendur á meiðslalistanum. Kári Kristjánsson skoraði hitt mark Þróttar.

Lestu nánar um leikinn


Dómarinn

Sveinn Arnarsson dæmir leikinn en hann hefur dæmt í Lengjudeildinni síðustu ár. Er að fara að dæma einn stærsta leik á sínum ferli. Óliver Thanh Tung Vú og Tryggvi Elías Hermannsson verða aðstoðardómarar. Gylfi Þór Orrason verður eftirlitsmaður KSÍ.



Hvað segja veðbankar
Epicbet er með 2,28 á sigur Þróttar, 4,06 á jafntefli og 2,74 á Aftureldingarsigur.
Lengjan er með 2,15 á sigur Þróttar, 3,75 á jafntefli og 2,64 á Aftureldingarsigur.



Leikir miðvikudagsins í Lengjudeildinni
18:00 Fylkir-Völsungur (tekk VÖLLURINN)
19:15 Grindavík-Leiknir R. (Stakkavíkurvöllur)
19:45 Þróttur R.-Afturelding (AVIS völlurinn)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding14+2231
2Þróttur R.15+1730
3Fylkir15+1030
4HK16+928
5Njarðvík15+223
6Grótta14+122
7Vestri15-521
8Leiknir R.15-419
9ÍR16-916
10Grindavík15-514
11Völsungur15-1511
12Ægir15-238
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.