Fotbolti.net
28.08.15 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Ola Toivonen til Sunderland (Staðfest)

Ola Toivonen til Sunderland (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur fengið sænska miðjumanninn Ola Toivonen á láni frá Rennes.

Hinn 29 ára gamli Toivonen spilar framarlega á miðjunni.

Hann hefur leikið 40 landsleiki með Svíum á ferli sínum og skorað 14 mörk í 46 leikjum með Rennes.

Toivonen var áður á mála hjá PSV Eindhoven þar sem hann spilaði undir stjórn Dick Advocaat núverandi stjóra Sunderland
Toivonen fer beint inn í leikmannahóp Sunderland fyrir leikinn gegn Aston Villa á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.