27.08.26 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Gæti snúið aftur í uppeldisfélagið

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Southampton er að skoða það að fá enska miðjumanninn James Ward-Prowse aftur til félagsins frá West Ham.
Samkvæmt Sky Sports er Southampton vongott um að fá hinn 31 árs gamla James Ward-Prowse aftur til félagsins á næstu dögum.
Það veltur þó á því hvort West Ham sé tilbúið að láta hann fara fyrir viðráðanlegt verð og hvort Ward-Prowse sé reiðubúinn að taka á sig launalækkun.
Ward-Prowse var ekki í leikmannahópi West Ham í 4-1 tapinu gegn Southampton í enska deildabikarnum á dögunum en hafði verið í hópnum í öllum leikjum liðsins fram að því.
Hann er uppalinn hjá Southampton og lék með aðalliði félagsins í tólf ár áður en hann gekk til liðs við West Ham árið 2023.
West Ham hefur tvívegis lánað hann út síðan þá, fyrst til Nottingham Forest og síðar til Burnley.