Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 28. september 2020 14:00
Magnús Már Einarsson
Arnar Grétars: Setjumst niður á næstunni og ræðum framhaldið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Grétarsson, þjálfari KA, reiknar með að funda með forráðamönnum félagsins á næstunni um framhaldið.

Arnar tók við KA í júlí og samdi þá út tímabilið.

KA vann Gróttu 4-2 á útivelli í gær og fór langt með að tryggja sæti sitt í deildinni þar. Arnar reiknar með að næsta skref sé að ræða framhaldið hjá sér með liðinu.

„Við vildum koma okkur í þá stöðu að við vildum vera öruggir í deildinni," sagði Arnar eftir leikinn í gær.

„Það er nokkuð ljóst að við erum ekki að fara niður en við viljum meira og komast í betri stöðu. Ég á von á því að við setjumst niður á næstunni og ræðum framhaldið."
Arnar Grétars um meiðsli Nökkva: Jafnvel talað um brot
Athugasemdir
banner
banner
banner