Samningur Franck Kessie við AC Milan rennur út eftir tímabilið.
Fréttir herma að hann sé búinn að neita nýju samningstilboði frá Milan og vilji fara til Englands þegar samningur hans við Milan rennur út.
Kessie telur að leikstíllinn á Englandi henti sér vel og lið á borð við Chelsea, Man Utd, Liverpool og Arsenal eru sögð hafa áhuga á leikmanninum.
Lið utan Englands á borð við PSG og Bayern Munchen eru einnig sögð hafa augastað á Kessie.
Þó svo viðræður við AC Milan gangi ekki vel hefur yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu, Paolo Maldini ekki gefist upp.
Athugasemdir