
ÍH 3 - 1 Smári
1-0 Rakel Eva Bjarnadóttir ('5 )
2-0 Nína Hildur Magnúsdóttir ('29 )
2-1 Oliwia Bucko ('64 )
3-1 Emma Björt Arnarsdóttir ('87 )
1-0 Rakel Eva Bjarnadóttir ('5 )
2-0 Nína Hildur Magnúsdóttir ('29 )
2-1 Oliwia Bucko ('64 )
3-1 Emma Björt Arnarsdóttir ('87 )
ÍH kláraði tímabilið með því að vinna Smára, 3-1, í 2. deild kvenna í gær.
Leikurinn átti upphaflega að fara fram í ágúst, en niðurstaðan var að færa um einn og hálfan mánuð.
Rakel Eva Bjarnadóttir og Nína Hildur Magnúsdóttir sáu til þess að ÍH færi með tveggja marka forystu inn í hálfleikinn, en Oliwia Bucko tókst að koma Smára aftur inn í leikinn þegar hálftími var eftir.
Þegar þrjár mínútur voru eftir gerði Emma Björt Arnarsdóttir þriðja mark ÍH og þar við sat.
Góður endir hjá ÍH sem vann ellefu leiki í sumar og hafnaði í 6. sæti, sem er töluverð bæting frá síðasta ári, en þá hafnaði liðið í næst neðsta sæti með aðeins þrjá sigra. Smári hafnaði í neðsta sæti með aðeins 4 stig.
Stöðutaflan

L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir