Fotbolti.net
28.10.20 - 13:30
Magnús Már Einarsson

Klopp: Þetta er eins og hjónaband

Klopp: Þetta er eins og hjónaband
Canon

Mynd: Getty Images

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir að liðið sé að takast á við erfiðan kafla í augnablikinu.

Varnarmennirnir Virgil van Dijk og Joel Matip eru meiddir og í sigrinum gegn Midtjylland í gær meiddist Fabinho sem hefur fyllt í skarðið í vörninni að undanförnu.

Liverpool vann leikinn í gær 2-0 en gestirnir frá Danmörku stríddu ensku meisturunum mikið. Liverpool vann einnig nauman sigur á heimavelli gegn Sheffield United um síðustu helgi.

„Þetta var erfitt kvöld. Þetta er svolítið eins og hjónaband, það eru góðir og slæmir tímar. Núna er ekki slæmur tími en þetta er erfiður tími," sagði Klopp.
„Við þurfum að standa 100% saman, berjast ennþá meira og strákarnir gerðu það í kvöld."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.