Fotbolti.net
28.10.20 - 10:30
Magnús Már Einarsson

Martial: Ég læri af fyrsta rauða spjaldinu

Martial: Ég læri af fyrsta rauða spjaldinu
Canon

Mynd: Getty Images

Anthony Martial verður í eldlínunni með Manchester United gegn RB Leipzig í Meistaradeildinni í kvöld.

Martial hefur verið í leikbanni í síðustu leikjum í ensku úrvalsdeildinni eftir rauða spjaldið sem hann fékk gegn Tottenham í síðasta mánuði þegar hann sló til Erik Lamela.

„Rauða spjaldið var það fyrsta á ævi minni og eitthvað sem ég mun læra af. Ég get núna lagt ennþá harðar að mér á æfingum og komið ennþá betri til baka," sagði Martial.
„Ég hef ekki ennþá skorað á þessu tímabili en ég veit að um leið og ég skora eitt mark þá verður allt í lagi."

„Ég þarf að leggja hart að mér á æfingum og sýna öllum hver hinn raunverulegi Anthony Martial er."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.