Fotbolti.net
28.10.26 - 16:08
Kári Snorrason

Tíu stærstu samningslausu bitarnir

Kristófer Ingi er með lausan samning.

Kristófer Ingi er með lausan samning.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nú þegar Íslandsmótinu er lokið fer leikmannamarkaðurinn á fullt. Fyrr í dag birti Fótbolti.net lista yfir komna, farna og samningslausa leikmenn.

Ljóst er að stórir bitar gætu fært sig um set en hér fyrir neðan er samantekt af tíu stærstu samningslausu leikmönnunum.
Komnir/farnir og samningslausir í Bestu og Lengjudeildinni
TENGT EFNI

Komnir/farnir og samningslausir í Bestu og Lengjudeildinni

<b>Emil Atlason:</b> Er með samningstilboð frá Stjörnunni en ólíklegt að hann haldi kyrru fyrir. Víkingur, Fram og KR, efstu þrjú lið deildarinnar, eru á eftir Emil.

Emil Atlason: Er með samningstilboð frá Stjörnunni en ólíklegt að hann haldi kyrru fyrir. Víkingur, Fram og KR, efstu þrjú lið deildarinnar, eru á eftir Emil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Kristófer Ingi Kristinsson:</b> Valsmenn hafa eins og áður mikinn áhuga á Kristófer og þá vilja Blikar halda honum. Hann er með tengingu á Hlíðarenda þar sem faðir hans er í stjórn en Kristófer vill sjálfur halda aftur út í atvinnumennsku.

Kristófer Ingi Kristinsson: Valsmenn hafa eins og áður mikinn áhuga á Kristófer og þá vilja Blikar halda honum. Hann er með tengingu á Hlíðarenda þar sem faðir hans er í stjórn en Kristófer vill sjálfur halda aftur út í atvinnumennsku.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Stefan Alexander Ljubicic:</b> Er með samningstilboð frá Keflvíkingum á borðinu en hann mun að öllum líkindum yfirgefa félagið. Víkingur, Stjarnan og FH eru öll áhugasöm um þennan stæðilega sóknarmann en hann vill reyna aftur fyrir sér erlendis.

Stefan Alexander Ljubicic: Er með samningstilboð frá Keflvíkingum á borðinu en hann mun að öllum líkindum yfirgefa félagið. Víkingur, Stjarnan og FH eru öll áhugasöm um þennan stæðilega sóknarmann en hann vill reyna aftur fyrir sér erlendis.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Sveinn Aron Guðjohnsen:</b> Skrifaði undir hálfs árs samning við Íslandsmeistarana. Hann stefnir að fara aftur út í atvinnumennsku en gæti verið mögulegur kostur fyrir lið í framherjaleit. 

Liðsfélagi hans hjá Víkingi, Aron Elís Þrándarson, er skráður með lausan samning á KSÍ en samkvæmt Víkingi rennur samningurinn út á næsta ári. Það væri þó hæpið að sjá hann fara frá uppeldisfélaginu og því kemst hann ekki á lista.

Sveinn Aron Guðjohnsen: Skrifaði undir hálfs árs samning við Íslandsmeistarana. Hann stefnir að fara aftur út í atvinnumennsku en gæti verið mögulegur kostur fyrir lið í framherjaleit. Liðsfélagi hans hjá Víkingi, Aron Elís Þrándarson, er skráður með lausan samning á KSÍ en samkvæmt Víkingi rennur samningurinn út á næsta ári. Það væri þó hæpið að sjá hann fara frá uppeldisfélaginu og því kemst hann ekki á lista.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Kristinn Steindórsson:</b> Yfirgefur Blika hafandi unnið allt sem hægt er að vinna með félaginu. Hann hefur verið orðaður m.a. við Val, HK og Fylki.

Kristinn Steindórsson: Yfirgefur Blika hafandi unnið allt sem hægt er að vinna með félaginu. Hann hefur verið orðaður m.a. við Val, HK og Fylki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Guðmundur Tyrfingsson:</b> Átti frábært tímabil í Árbænum þar sem hann skoraði 15 mörk í 22 leikjum í Lengjudeildinni. FH hefur verið orðað við þennan 23 ára sóknarmann.

Guðmundur Tyrfingsson: Átti frábært tímabil í Árbænum þar sem hann skoraði 15 mörk í 22 leikjum í Lengjudeildinni. FH hefur verið orðað við þennan 23 ára sóknarmann.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Adam Ægir Pálsson:</b> Yfirgaf Val í sumar og skrifaði undir hálfs árs samning við KA. Var manna sprækastur fram á við á annars erfiðu tímabili Norðanmanna.

Adam Ægir Pálsson: Yfirgaf Val í sumar og skrifaði undir hálfs árs samning við KA. Var manna sprækastur fram á við á annars erfiðu tímabili Norðanmanna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Kristinn Jónsson:</b> Þessi þaulreyndi bakvörður var í takmörkuðu hlutverki hjá Breiðabliki í sumar en eflaust flestir sem vita yfir hvers konar gæðum hann býr yfir. Orðinn 36 ára en hefur ekki gefið út að hann ætli að hætta.

Kristinn Jónsson: Þessi þaulreyndi bakvörður var í takmörkuðu hlutverki hjá Breiðabliki í sumar en eflaust flestir sem vita yfir hvers konar gæðum hann býr yfir. Orðinn 36 ára en hefur ekki gefið út að hann ætli að hætta.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Sigurður Arnar Magnússon:</b> Eyjamaðurinn er fluttur í bæinn og hefur Valur sett sig í samband við hann.

Sigurður Arnar Magnússon: Eyjamaðurinn er fluttur í bæinn og hefur Valur sett sig í samband við hann.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<b>Markus Lund Nakkim:</b> Þessi þrítugi Norðmaður er á radarnum hjá bæði Íslandsmeisturum Víkings og Skagamönnum.

Markus Lund Nakkim: Þessi þrítugi Norðmaður er á radarnum hjá bæði Íslandsmeisturum Víkings og Skagamönnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.