28.10.26 - 16:59
Elvar Geir Magnússon
Barcelona sektað um 80 þúsund krónur vegna Alvarez

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Barcelona hefur verið gert að greiða 602 evrur (80 þúsund krónur) í sekt eftir kvörtun Atletico Madrid vegna samskipta félagsins við sóknarmanninn Julian Alvarez.
Atletico sakaði Börsunga um að hafa haft samband við argentínska landsliðsmanninn án þess að láta Atletico vita.
Sektin kom frá spænska fótboltasambandinu. Atletico kvartaði einnig til FIFA en sambandið gaf það svar að það hefði ekki lögsögu í málinu.
Alvarez, sem er 26 ára, vildi fara til Börsunga og hefur oft fengið baul frá eigin stuðningsmönnum á tímabilinu. Á dögunum steig hann fram og baðst afsökunar á framkomu sinni.

TENGT EFNI
Alvarez baðst afsökunar - „Þetta voru mistök“
„Ég skil vel hvers vegna stuðningsmennirnir voru reiðir. Ég hefði sjálfur brugðist eins við ef ég væri í þeirra sporum. Ég vil biðja stuðningsmenn okkar afsökunar á því sem ég sagði á meðan heimsmeistaramótið stóð yfir. Þetta voru mistök, bæði hvernig ég orðaði hlutina og hvenær ég lét þau falla," sagði Alvarez.