28.10.26 - 17:24
Elvar Geir Magnússon
Magnús Már talinn æ líklegri til að taka við Breiðabliki

Magnús Már Einarsson kom Aftureldingu upp í Bestu deildina í sumar og í bikarúrslit þar sem liðið tapaði gegn Breiðabliki.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arnar Grétarsson er talinn líklegastur af Epicbet.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Veðbankar telja enn að Arnar Grétarsson sé líklegastur til að taka við Breiðabliki, einu eftirsóknarverðasta þjálfarastarfi landsins. Jökull Elísabetarson kemur þar á eftir en athygli vekur að Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, hefur stokkið upp listann og er nú þriðji líklegasti.
Breiðablik er þjálfaralaust eftir að Ólafur Ingi Skúlason var rekinn og margir þjálfarar sem horfa til starfsins.

TENGT EFNI
Hver tekur við Blikum? - Tíu nöfn sem gætu verið á blaði
Í gær var stuðullinn á Magnús Má hjá Epicet 10,0 en hefur nú hrapað niður í 5,0. Arnar er talinn líklegastur með stuðulinn 3,0 en Jökull er með 4,5 í stuðul.
Magnús Már vildi lítið segja í samtali við Vísi í dag. „Þeir þurfa þá að fara í gegnum Aftureldingu og fá leyfi fyrir viðræðum fyrst. Auðvitað er Blikastarfið spennandi en minn hugur er bara við það að byggja upp lið til að takast á við komandi átök í Bestu deildinni," sagði Magnús.
Arnar fer ekki leynt með áhuga sinn í samtali við Vísi en hann stýrði liðinu 2015-2017. Hann hefur ekki enn heyrt formlega í félaginu. Fótbolti.net reyndi að ná tali af Jökli í dag en án árangurs. Margir spá því að hann verði ráðinn í starfið.