Fotbolti.net
28.10.26 - 17:20
Kári Snorrason

Hætta að sýna leiki Real Madrid í Kína vegna ummæla Mbappé

Mbappé á Ballon D'or hátíðinni fyrr í vikunni.

Mbappé á Ballon D'or hátíðinni fyrr í vikunni.

Canon

Mynd: EPA

Kínverska ríkissjónvarpið hefur stöðvað útsendingar frá LaLiga vegna ummæla Kylian Mbappé um Maó Zedong, fyrrverandi leiðtoga Kína.

Í myndskeiði úr frönskum spjallþætti sagðist Mbappé hafa skemmt sér yfir mynd þar sem andlit hans hafði verið sett á mynd af manni sem hann lýsti sem 'einhverjum kínverskum einræðisherra'.
Mbappé missir stuðning í Kína vegna ummæla í spjallþætti
TENGT EFNI

Mbappé missir stuðning í Kína vegna ummæla í spjallþætti

Netverjar hafa grínast með það að Mbappé sé einræðisherra vegna valda hans þegar hann var leikmaður PSG.

Ummælin fóru mikið fyrir brjóstið á Kínverjum og baðst Mbappé afsökunar á þriðjudag og Real Madrid gaf út afsökunarbeiðni í dag. Þá hafa þrjú kínversk fyrirtæki slitið auglýsingasamningum við Frakkann.

Þrátt fyrir ákvörðun ríkissjónvarpsins verða leikir spænsku úrvalsdeildarinnar áfram sýndir hjá streymisveitunni Migu. Níu af tíu leikjum næstu umferðar sýndir þar en leikur Real Madrid gegn Racing Santander á sunnudag er sá eini sem er ekki á dagskrá.

Það eru liðin rétt rúmlega 50 ár síðan Maó lést en viðfangsefnið er enn viðkvæmt. Hann var formaður Kommúnistaflokks Kína frá 1943 til dauðadags 1976 og leiðtogi landsins frá 1949 til 1976.

Hér fyrir neðan má sjá myndband af fyrrum stuðningsmanni Mbappé kveikja í treyju þess franska.


Netverjar grínast með það að kalla Mbappé einræðisherrann.

Netverjar grínast með það að kalla Mbappé einræðisherrann.

Canon

Mynd: Af netinu

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.