lau 28. nóvember 2020 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Alvaro orðaður við Leikni R.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samningur Alvaro Montejo við Þór Akureyri rann út eftir tímabilið. Alvaro hefur leikið með Þór undanfarin þrjú tímabill en hann kom fyrst til Íslands árið 2014 og lék þá með Hugin.

Spænski sóknarmaðurinn verður þrítugur í desember og eru líkur á því að hann leiki annars staðar en í Þorpinu á komandi tímabili.

Í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í gær var Alvaro orðaður við Leikni Reykjavík sem fór upp í Pepsi Max-deildina á liðnu tímabili.

Alvaro skoraði fjórtán mörk í Lengjudeildinni á liðnu tímabili og hefur alls skorað 64 mörk í 110 deildar- og bikarleikjum síðan hann kom fyrst til Íslands.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner