Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   lau 28. nóvember 2020 12:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Matip ekki meiddur - Klopp hefur fulla trú á Phillips
Mynd: Getty Images
Joel Matip er ekki í leikmannahópi Liverpool sem er þessa stundina að spila á móti Brighton í úrvalsdeildinni. Í miðverðinum hjá Liverpool eru þeir Fabinho og Nathaniel Phillips.

Matip er ekki meiddur ef marka má orð James Pearce. Hann segir að verið sé að hugsa um mínútufjölda Matip en hann hefur þegar leikið 180 mínútur í þessari viku, 90 mínútur gegn bæði Leicester og Atalanta.

Jurgen Klopp, stjóri liðsins, var spurður út í Phillips fyrir leikinn í dag.

„Aftur er þetta nýtt miðvarðapar. Ég er ekki hrifinn að hrófla mikið við liðinu í öftustu línu en nú fær Phillips aftur tækifærið. Ég hef fulla trú á Phillips og treysti honum. Hann mun gefa allt sem hann á í leikinn."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner