Fotbolti.net
28.11.24 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Í samstarfi við styrktaraðila

Evrópudeildin í dag - Man Utd mætir norsku meisturunum

Ruben Amorim stýrir fyrsta Evrópuleik sínum með United

Ruben Amorim stýrir fyrsta Evrópuleik sínum með United

Canon

Mynd: Getty Images

Fimmta umferðin í deildarkeppni Evrópudeildarinnar fer fram í kvöld.
Ruben Amorim stýrir fyrsta Evrópuleik sínum sem stjóri Manchester United er liðið tekur á móti norsku meisturunum í Bodö/Glimt.

United hefur aðeins unnið einn leik af fjórum í keppninni, en liðið er með sjö stig.

Tottenham Hotspur tekur á móti Roma í Lundúnum. Tottenham hefur unnið þrjá leiki og tapað einum.

Andri Fannar Baldursson og Eggert Aron Guðmundsson verða í eldlínunni með Elfsobrg sem heimsækir Athletic og þá verður Elías Rafn Ólafsson í marki Midtjylland sem mætir Eintracht Frankfurt.

Daníel Tristan Guðjohnsen og félagar í Malmö heimsækja Ferencvaros og þá mætast Real Sociedad og Ajax í Íslendingaslag á Spáni. Orri Steinn Óskarsson verður ekki með Sociedad vegna meiðsla en Kristian Nökkvi Hlynsson verður væntanlega í hópnum hjá Ajax.

Lúkas Petersson er þriðji markvörður Hoffenheim en hefur ekki enn verið í hóp á tímabilinu. Liðið heimsækir Braga í Portúgal.

Leikir dagsins:
17:45 Athletic - Elfsborg
17:45 AZ - Galatasaray
17:45 Besiktas - Maccabi Tel Aviv
17:45 Dynamo K. - Plzen
17:45 Lazio - Ludogorets
17:45 Qarabag - Lyon
17:45 Rigas FS - PAOK
17:45 Anderlecht - Porto
20:00 Midtjylland - Eintracht Frankfurt
20:00 Twente - St. Gilloise
20:00 Steaua - Olympiakos
20:00 Ferencvaros - Malmö
20:00 Man Utd - Bodo-Glimt
20:00 Nice - Rangers
20:00 Real Sociedad - Ajax
20:00 Slavia Prag - Fenerbahce
20:00 Braga - Hoffenheim
20:00 Tottenham - Roma
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.