28.11.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ætlar að ræða við Azaz eftir umdeilda fagnið - „Vanvirðing"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Tonda Eckert, stjóri Southampton, segist ætla að ræða málin við Finn Azaz, leikmann liðsins, eftir að hann fagnaði með látbragði í átt að stuðningsmönnum Middlesbrough í leik liðanna í Championship deildinni í gær.
Azaz hljóp upp allan völliinn þegar hann skoraði annað mark Southampton í 2-0 sigri og var með látbragð þar sem hann setti kreppta hnefa við augun eins og hann væri að segja við stuðningsmennina að hætta að grenja.

TENGT EFNI
Championship: Lærisveinn Heimis ögraði stuðningsmönnum toppliðsins
Azaz greindi frá því eftir leikinn að stuðningsmenn Middlesbrough hafi gert lítið úr fjölskyldu hans í leikjum liðanna á síðustu leiktíð. Azaz gekk til liðs við Southampton frá Middlesbrough í fyrra.
„Ég sagði honum að þetta væri ókurteisi og vanvirðing. Það er okkar ábyrgð að reyna að vera betri en þetta er líka strákur með miklar tilfinningar og stundum getur það farið illa með mann," sagði þá Kim Hellberg, stjóri Middlesbrough.