Fotbolti.net
29.01.23 - 13:45
Aksentije Milisic

De Zerbi um Caicedo: Við gerum öll mistök í þessu lífi

De Zerbi um Caicedo: Við gerum öll mistök í þessu lífi
Canon

Mynd: EPA

Roberto De Zerbi, stjóri Brighton, tjáði sig um Mosies Caicedo fyrir leikinn gegn Liverpool í enska bikarnum sem nú er í gangi.

Caicedo bað um sölu frá félaginu en Arsenal er að reyna krækja í leikmanninn. Brighton vill fá 80 milljónir punda fyrir miðjumanninn en besta sem Arsenal hefur boðið eru 70.

Caicedo er ekki að æfa með Brighton þessa daganna svo hann er ekki í leikmannahópnum gegn Liverpool.

„Caicedo er góður strákur. Við sjáum til hvað gerist. Vonandi verður hann áfram hjá okkur en þetta veltur á félaginu og honum sjálfum," sagði Ítalinn.

„Við gerum öll mistök í þessu lífi. Við sjáum hver besta niðurstaðan verður fyrir félagið, fyrir Caicedo og fyrir okkur," sagði De Zerbi við ITV.

Brighton vill ekki missa Caicedo rétt fyrir lok gluggans án þess að fá annan miðjumann inn. Tíminn er naumur.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.