Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   sun 29. janúar 2023 17:18
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu magnað sigurmark Mitoma
Mynd: EPA

Kaoru Mitoma, kantmaður Brighton og japanska landsliðsins, gerði sigurmarkið í bikarslag Brighton gegn Liverpool í dag.


Mitoma skoraði markið í uppbótartíma og var það af dýrari gerðinni. Japaninn fékk boltann á lofti og tók magnaða fyrstu snertingu, hótandi um leið skoti, til að leggja boltann fyrir sig.

Frábær sigur Brighton var þetta þriðja innbyrðisviðureign liðanna á nokkrum mánuðum. Brighton hefur sýnt yfirburði í undanförnum leikjum gegn Liverpool og er með tvo sigra og eitt jafntefli í þessum þremur leikjum.

Roberto De Zerbi hefur stýrt Brighton í 17 leikjum í heildina og hafa þrír þeirra verið gegn Liverpool, sem þykir merkilegt. Það munaði minnstu að viðureign Brighton og Liverpool hefði þurft að vera endurspiluð, sem gerist ef það er jafntefli í bikarnum, og þá yrðu leikirnir gegn Liverpool fjórir.

Sjáðu sigurmark Mitoma með japanskri lýsingu


Athugasemdir
banner
banner
banner