Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 29. mars 2023 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Benoný Breki verður leikmaður KR á næstu dögum
Mynd: Bologna

Benoný Breki Andrésson er mættur í KR en hann bíður eftir leikheimild.


Hann skoraði í 3-2 sigri KR gegn FH í æfingaleik í síðustu viku en má ekki spila í opinberum KSÍ leikjum fyrr en allt er klappað og klárt.

Fótbolti.net ræddi við Rúnar Kristinsson í gær á kynningarfundi fyrir Bestu deildina en Rúnar sagðist þá bjartsýnn að Benoný fái leikheimild á næstu dögum.

„Við reiknum fastlega með því að hann verði orðinn okkar leikmaður innan fárra daga. Við þurfum ekki á fleiri leikmönnum að halda, mér finnst við vera orðnir nokkuð þéttir. Þetta verður að koma í ljós, ef við sleppum við meiðsli og annað slíkt þá þurfum við ekki að gera neitt meira," sagði Rúnar.


Chopart og Theodór Elmar fyrirliðar KR - „Ofboðslega flottur leiðtogi"
Athugasemdir
banner