Arsenal og Atletico Madrid gerðu 1-1 jafntefli á Metropolitano Í Madríd í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.
Viktor Gyökeres kom Arsenal yfir með marki úr vítaspyrnu sem hann fiskaði. Julian Alvarez jafnaði metin með marki úr vítaspyrnu sem var dæmd þegar Ben White fékk boltann í höndina.
Viktor Gyökeres kom Arsenal yfir með marki úr vítaspyrnu sem hann fiskaði. Julian Alvarez jafnaði metin með marki úr vítaspyrnu sem var dæmd þegar Ben White fékk boltann í höndina.
Dómari leiksins dæmdi vítaspyrnu þegar Eberechi Eze var felldur í teignum seint í leinum en eftir skoðun í VAR taldi hann snertinguna ekki nægilega mikla og tók dóminn til baka.
Sérfræðingar virðast vera á einu máli og telja að vítaspyrnudómurinn á White hafi verið rangur og þá hafi vítaspyrnan sem Eze fékk átt að standa.
„Hann fer í skjáinn og er þar í tvær mínútur, þá eru þetta ekki augljós mistök. VAR á bara að vera til að laga augljós mistök. Hann þarf að skoða þetta svona lengi, það er ljóst að þetta eru ekki augljós mistök," sagði Albert Brynjar Ingason, sérfræðingur í setti á Sýn Sport.
„Dómarar verða að hafa hugrekki til að standa við sína eigin ákvörðun. Þetta voru ekki augljós mistök og það vita það allir. Hegðun Simeone fær dómarann til að efast um ákvörðunina," sagði Steven Gerrard, sérfræðingur hjá TNT.
„Fólk getur talað um frammistöðu Arsenal. Voru þeir nógu góðir á síðasta þriðjung? Sennilega ekki. Atletico menn voru frábærir í seinni hálfleik og áttu skilið að fá eitthvað út úr þessum leik. Það voru hins vegar tvær svakalegar ákvaðanir sem fóru gegn Arsenal," sagði Chris Sutton, sérfræðingur á BBC. „Mér fannst þetta ekki vera hendi á Ben White því boltinn fer af sköflunginum fyrst."
Martin Keown, fyrrum varnarmaður Arsenal, tjáði sig um vítið sem Eze fékk en var dregið til baka:
„Mér fannst þetta einfaldlega ekki vera klár og augljós mistök sem þurfti að leiðrétta. Við viljum ekki nota VAR á þennan hátt. Dómarinn hefði átt að fá að taka sína ákvörðun án þess að VAR myndi skipta sér af," segir Keown.
„Dómarinn hefði ekki átt að vera sendur í skjáinn. Diego Simeone horfði á og ég tel að dómarinn hafi kiknað undan pressunni. Það var snerting og þetta var klaufalegt frá Hancko."



