Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   mið 29. apríl 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeildin í dag - Arsenal fer til Madrídar
Mynd: EPA
Atlético Madrid og Arsenal eigast við í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld og fer leikurinn fram á Metropolitano vellinum í Madríd.

Atlético sló Spánarmeistara Barcelona úr leik til að komast í undanúrslitin eftir að hafa einnig slegið Tottenham og Club Brugge úr leik í útsláttarkeppninni.

Arsenal fór styttri leið og þurfti aðeins að leggja Bayer Leverkusen og Sporting CP að velli til að koma sér í undanúrslitin eftir fullkominn árangur í deildarkeppninni.

Liðin eigast við í kvöld og fer seinni leikurinn svo fram á Emirates leikvanginum næsta þriðjudag.

Meistaradeildin
19:00 Atletico Madrid - Arsenal
Slapp
banner
banner