Arsenal hefur tekið forystuna gegn Atletico Madrid í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Leikurinn fer fram á Metropolitano í Madrid.
Það er kominn hálfleikur en fyrri hálfleikur var nokkuð tíðindalítill.
Það er kominn hálfleikur en fyrri hálfleikur var nokkuð tíðindalítill.
Það dró loksins til tíðinda þegar Arsenal fékk vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks. Viktor Gyökeres fékk boltann inn á teignum og David Hancko hrinti honum og vítaspyrna dæmd.
Gyökeres fór sjálfur á punktinn og skoraði og sá til þess að Arsenal var með forystuna í hálfleik.



