Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, segir ekkert til í sögusögnum þess efns að félagið sé að skoða leikmannaskipti við Víking R.
Orðrómur hefur verið uppi um að Kristinn Freyr Sigurðsson, leikmaður Vals, gæti farið til Víkings í skiptum fyrir danska framherjann Nikolaj Hansen.
Orðrómur hefur verið uppi um að Kristinn Freyr Sigurðsson, leikmaður Vals, gæti farið til Víkings í skiptum fyrir danska framherjann Nikolaj Hansen.
„Það er ekkert til í því," sagði Heimir við Fótbolta.net eftir 4-0 sigurinn á HK í gærkvöldi.
Kristinn hefur verið á bekknum hjá Val í byrjun móts en hann kom inn á sem varamaður á 71. mínútu gegn HK í gær.
Félagaskiptaglugginn lokar á morgun en Heimir reiknar ekki með breytingum á Hlíðarenda.
„Ég sagði fyrir mót að þetta er leikmannahópurinn sem við förum með inn í mótið og við munum halda okkur við það,"
Hér að neðan má sjá viðtalið í heild.
Athugasemdir