Fotbolti.net
29.06.20 - 11:46
Elvar Geir Magnússon

Sjáðu vítadóminn á Akranesi sem fólk botnaði ekkert í

Einar Ingi Jóhannsson.

Einar Ingi Jóhannsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Hvernig er ekki hægt að sturlast þegar maður fær á sig svona víti? Hvernig eru ekki komnir sex gæjar í grillið á dómaranum að segja hversu mikill trúður hann sé?"</i> skrifar Aron Elís Þrándarson, leikmaður OB í Danmörku, á Twitter.

Aron er þar að furða sig á vítaspyrnudómi í leik ÍA og KR þar sem KR-ingar fengu furðulegt víti.

<b>Sjá einnig:</b>
<a href="https://fotbolti.net/news/29-06-2020/joi-valgeirs-er-enginn-ad-kenna-domurunum-ad-daema" target="_blank">Jói Valgeirs: Er enginn að kenna dómurunum að dæma?</a>

KR var að vinna leikinn 2-1 þegar vítið var dæmt. Pálmi Rafn Pálmason tók svo arfadapra spyrnu og skaut framhjá markinu. Ekki voru fleiri mörk skoruð.

Hér að neðan má sjá vítaspyrnudóminn og spyrnuna en <a href="https://www.visir.is/sjonvarp" target="_blank">Vísir birti klippuna</a>. Henry Birgir Gunnarsson lýsti leiknum og botnaði lítið í þessari dómgæslu Einars.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.