Þjálfarateymi og starfsfólk kvennaliðs KR hefur losnað úr sóttkví en Aníta Lísa Svansdóttir, aðstoðarþjálfari liðsins, segir frá þessu á Twitter.
Allir leikmenn og starfsmenn KR fóru í sóttkví eftir að leikmaður Breiðabliks greindist smitaður af kórónaveirunni.
Smitið greindist á fimmtudag, tveimur dögum eftir leik liðsins gegn KR.
Þeir varamenn sem komu ekki inn á í leiknum gegn Breiðabliki eru einnig lausir úr sóttkví.
Búið er að fresta næstu tveimur leikjum KR í Pepsi Max-deildinni, gegn FH og Selfossi.

Að gefnu tilefni þá voru þjálfarateymi og starfsfólk KR losað úr sóttkví. Smitrakningarteymið skoðaði leikinn vel og losaði líka ónotaði varamenn frá okkur. Allir að fylgja öllum reglum 😊 #fotboltinet
— Anita Lisa (@anita_lisa) June 29, 2020
Athugasemdir