29.06.21 - 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Burnley borgar 12 milljónir punda fyrir varnarmann (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Burnley er búið að krækja í Nathan Collins og fær hann frá Stoke. Collins skrifar undir fjögurra ára samning.
Burnley greiðir tólf milljónir punda í miðvörðinn sem átti góða leiktíð með Stoke í Championship deildinni.
Burnley greiðir tólf milljónir punda í miðvörðinn sem átti góða leiktíð með Stoke í Championship deildinni.
Collins er írskur og hefur leikið með yngri landsliðum þjóðarinnar. Hann lék meðal annrars með U21 árs landsliðinu gegn Íslandi í nóvember og fékk rauða spjaldið þegar skammt var eftir af leiknum. Í kjölfarið vann Ísland svo leikinn og tryggði sér sæti á EM.
Burnley endaði í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í vor. Jóhann Berg Guðmundsson er leikmaður liðsins og Sean Dyche er stjóri félagsins.
Burnley endaði í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í vor. Jóhann Berg Guðmundsson er leikmaður liðsins og Sean Dyche er stjóri félagsins.
