Fotbolti.net
29.06.21 - 09:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fernandinho framlengir við Man City (Staðfest) - „Verkinu ekki lokið"

Fernandinho framlengir við Man City (Staðfest) - „Verkinu ekki lokið"
Canon

Mynd: EPA

Brasilíski miðjumaðurinn Fernandinho er búinn að framlengja samning sinn við Manchester City um eitt ár. Samningur hans átti að renna út núna um mánaðarmótin en ljóst er að hann verður ár til viðbótar í Manchester.
Fernandinho er 36 ára og kom hann til City frá Skahktar Donetsk árið 2013.

„Ég er með það í höfðinu mínu að verkinu sé ekki lokið," sagði Fernandinho við undirskrift.

Fernandinho er fyrirliði City og vakti það athygli þegar hann var ekki í byrjunarliði liðsins gegn Chelsea í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Hann byrjaði seinni leikinn gegn PSG í undanúrslitunum en Pep Guardiola, stjóri liðsins, ákvað að spila án djúps miðjumanns í úrslitaleiknum.

City hefur unnið þrjá af síðustu fjórum Englandsmeistaratitlum. 2018, 2019 og nú síðast í vor varð liðið meistari.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.