Fotbolti.net
29.06.21 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Galtier hættir með frönsku meistarana og tekur við Nice (Staðfest)

Cristophe Galtier er mættur til Nice

Cristophe Galtier er mættur til Nice

Canon

Mynd: Getty Images

Cristophe Galtier er hættur með franska meistaraliðið Lille og er tekinn við Nice í frönsku deildinni en bæði félögin staðfestu þetta í gær.
Galtier gerði Lille að meisturum í Frakklandi á síðustu leiktíð þrátt fyrir mikil fjárhagsleg vandræði hjá félaginu.

Nice greiðir Lille fimm milljónir evra fyrir þjónustu hans en hann átti eitt ár eftir af samningnum hjá Lille.

Galtier gerir þriggja ára samning við Nice.

Laurent Blanc, Lucien Favre, Thiago Motta og Leandro Jardim hafa allir verið orðaðir við þjálfarastöðuna hjá Lille.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.