Fotbolti.net
29.06.21 - 11:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hollenskur varnarmaður til ÍA (Staðfest)

Droste (til vinstri)

Droste (til vinstri)

Canon

Mynd: EPA

ÍA hefur gengið frá samningi við Wout Droste og fær hann leikheimild þegar félagaskiptaglugginn opnar eftir mánaðarmót.

Droste er hollenskur varnarmaður og semur hann út næsta tímabil.

Hann er 32 ára og er hægri bakvörður sem leikið hefur 122 leiki í efstu deild í Hollandi og lék á sínum tíma sjö leiki fyrir hollenska U19 landsliðið. Hans síðustu leikir í efstu deild voru tímabilið 2018/19. Í vetur spilaði hann 25 leiki í hollensku B-deildinni, skoraði eitt mark og lagði upp tvö.

Droste var samningslaus en hann hefur verið hjá Go Ahead Eagles undanfarin ár. Hann hefur einnig leikið með Twente, Cambuur og Heracles á félaginu.
ÍA er í neðsta sæti Pepsi Max-deild­ar­inn­ar með aðeins sex stig.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.