Fotbolti.net
29.06.21 - 15:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Nübel til Mónakó - Bayern endurheimtir Ulreich (Staðfest)

Nübel til Mónakó - Bayern endurheimtir Ulreich (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Bayern Munchen virðist vera búið að klára markvarðarmálin fyrir komandi tímabil.

Alexander Nübel er farinn frá félaginu og mun hann spila með Mónakó í frönsku deildinni á komandi tímabili.
Bayern endurheimtir þá Sven Ulreich eftir eins árs útlegð hjá Hamburg. Ulreich var hjá Bayern á árunum 2015-2020 en lék í B-deildinni með HSV í vetur.

Nübel lék fjóra leiki í öllum keppnum með Bayern í fyrra en félagið ákvað að lána hann til Mónakó.

Ulreich mun því væntanlega vera til vara fyrir Manuel Neuer.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.