Fotbolti.net
29.06.21 - 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Schopp tekur við Barnsley (Staðfest)

Schopp tekur við Barnsley (Staðfest)
Canon

Mynd: Barnsley

Barnsley er búið að finna nýjan knattspyrnustjóra en Valerien Ismael var ráðinn til WBA á dögunum.

Nýi stjórinn heitir Markus Schopp og er 47 ára Austurríkismaður. Hann lék 56 landsleiki á sínum ferli og kemur til Barnsley eftir að hafa stýrt TSV Hartberg í austurrísku deildinni.
Á ferli sínum lék hann með Sturm Graz, HSV, Brescia, Red Bull Salzburg og New York Red Bulls.

Ismael stýrði Barnsley á síðustu leiktíð og endaði í umspilssæti með liðið eftir að það rétt bjargaði sér frá falli ári áður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.