29.06.21 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Scott Parker tekur við Bournemouth (Staðfest)

Scott Parker er nýr stjóri Bournemouth

Mynd: Getty Images

Scott Parker er nýr stjóri Bournemouth

Mynd: Getty Images
Scott Parker er nýr knattspyrnustjóri enska B-deildarliðsins Bournemouth. Hann gerir þriggja ára samning við félagið.
Parker hætti með Fulham í gær eftir að hafa stýrt liðinu síðustu þrjú tímabil.
Hann tók við Fulham árið 2019 og féll niður í B-deildina en vann sig strax aftur upp í úrvalsdeildina ári síðar. Fulham endurtók leikinn og féll niður í B-deildina og ákvað Parker að reyna fyrir sér annars staðar.
Fulham staðfesti brottför hans í gær og nokkrum tímum seinna skrifaði hann undir hjá Bournemouth.
Hann tekur við liðinu af Jonathan Woodgate en liðið komst í umspil um sæti í úrvalsdeildinni en tapaði fyrir Brentford í undanúrslitum.