Fotbolti.net
29.06.21 - 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Soldado heim til Valencia og semur við Levante (Staðfest)

Soldado heim til Valencia og semur við Levante (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn Roberto Soldado er genginn í raðir Levante. Liðið spilar í La Liga og endaði í 14. sæti á síðasta tímabili.

Hann kemur til félagsins frá Granada og skrifar undir tveggja ára samning við félagið. Levante greiðir um 500 þúsund pund fyrir leikmanninn.
Soldado er fyrrum leikmaður Real Madrid, Valencia og Tottenham og skoraði hann fjórtán mörk á síðasta tímabili.

Soldado er fæddur í Valencia og Levante er félag í borginni. Það má því segja að hann sé að snúa heim.

Soldado er 36 ára gamall og lék á sínum tíma tólf A-landsleiki fyrir Spán.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.