Fotbolti.net
29.06.26 - 13:51
Elvar Geir Magnússon

Chelsea gaf út yfirlýsingu og Maresca biðst afsökunar

Enzo Maresca.

Enzo Maresca.

Canon

Mynd: EPA

Enzo Maresca var í dag kynntur sem nýr stjóri Manchester City. Athygli vakti þegar Maresca hætti hjá Chelsea í desember síðastliðnum en Chelsea hefur gefið út yfirlýsingu með útskýringu til stuðningsmanna.

„Chelsea gerir sér grein fyrir því að tímabilið var gríðarleg vonbrigði fyrir félagið og fyrir stuðningsmennina. Stór ástæða fyrir því er sú truflun sem varð hjá félaginu um jólaleytið þegar ráðast þurfti í stjórabreytingar," segir í yfirlýsingu Chelsea.

Þar kemur fram að Maresca hafi í desember látið félagið vita af því að það gæti verið tækifæri fyrir hann að taka við City eftir tímabilið. Það hafi verið augljóst að hann var með mikinn vilja til að taka við af Guardiola þrátt fyrir að vera með langtímasamning hjá Chelsea.

„Í desember 2025 þá sagði hann óvænt upp. Augljóslega fannst okkur hann hafa brugðist okkur því hugur hans og hjarta voru komin í annað félag."
Maresca kynntur hjá Man City (Staðfest)
TENGT EFNI

Maresca kynntur hjá Man City (Staðfest)

Í annarri yfirlýsingu, sem Maresca sendi frá sér persónulega, biðst hann afsökunar.

„Ég tók þá erfiðu ákvörðun að yfirgefa Chelsea. Þetta var eingöngu mín ákvörðun. Uppsögnin opnaði leið fyrir mig til að taka við Manchester City og ég er nú himinlifandi að vera kominn til City," segir Maresca.

„Ég geri mér grein fyrir því að uppsögn mín hjá Chelsea á miðju tímabili truflaði félagið og ég biðst afsökunar á því. Það var hvorki ætlun mín né ósk. Það var komið vel fram við mig af öllum hjá Chelsea og saman sköpuðum við minningar og náðum árangri sem ég mun alltaf varðveita. Ég er þakklátur félaginu, eigendunum og stuðningsmönnunum fyrir þetta tækifæri."
Chelsea gaf út yfirlýsingu og Maresca biðst afsökunar
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.