Edwards annar stjórinn sem hafnar Burnley

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Rob Edwards hefur hafnað tilboði frá Burnley um að taka við sem stjóri liðsins. Edwards, sem var óvænt rekinn frá Úlfunum fyrr í þessum mánuði, hafði verið talinn líklegasti kosturinn í starfið.
Burnley hafði jafnframt reynt að fá Craig Bellamy til að taka við af Scott Parker.
Bellamy virtist um tíma á leiðinni til félagsins en snerist hugur á síðustu stundu og ákvað að halda áfram sem landsliðsþjálfari Wales.

Burnley er því enn stjóralaust tveimur mánuðum eftir að Parker lét af störfum í kjölfar falls félagsins úr ensku úrvalsdeildinni.