Fotbolti.net
29.06.26 - 16:30
Kári Snorrason

Þjálfari Tékka segir af sér eftir vonbrigðin á HM

Miroslav Koubek.

Miroslav Koubek.

Canon

Mynd: EPA

Miroslav Koubek hefur sagt upp störfum sem landsliðsþjálfari Tékklands eftir slæmt gengi á heimsmeistaramótinu.

Tékkland var eitt af 16 liðum sem komust ekki áfram í 32-liða úrslitin en liðið endaði með eitt stig í A-riðli eftir að hafa tapað gegn Suður-Kóreu og Mexíkó og gert jafntefli við Suður-Afríku.
Koubek, sem er 74 ára gamall, komst að samkomulagi við tékkneska fótboltasambandið um að segja upp störfum en samningur hans var í gildi út EM 2028.

Í tilkynningu frá sambandinu lýsir hann þakklæti fyrir tímann sem landsliðsþjálfari Tékka og segist taka á sig sinn skerf af ábyrgðinni á vonbrigðunum á heimsmeistaramótinu.

Hann er ekki fyrsti þjálfarinn til að segja af sér eftir slæmt gengi á mótinu en Steve Clarke, landsliðsþjálfari Skotlands, sagði upp störfum í fyrradag.

Hong Myung-bo, landsliðsþjálfari Suður-Kóreu, sagði jafnframt af sér eftir að liðið komst ekki áfram.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.