fim 29. júlí 2021 22:21
Brynjar Ingi Erluson
4. deild: Hörður skoraði sex gegn Reyni - Rosaleg spenna í C-riðli
Mynd: Benóný Þórhallsson
Hörður Í. 6 - 0 Reynir H.
1-0 Kári Eydal ('2, víti )
2-0 Felix Rein Grétarsson ('13 )
3-0 Sigurður Arnar Hannesson ('35 )
4-0 Felix Rein Grétarsson ('37 )
5-0 Davíð Hjaltason ('40 )
6-0 Guðmundur Páll Einarsson ('77 )

Hörður frá Ísafirði skoraði sex mörk gegn Reyni H. í C-riðli 4. deildar karla í kvöld. Spennan um sæti í úrslitakeppninni er rafmögnuð.

Felix Rein Grétarsson skoraði tvö fyrir Hörð í kvöld en Kári Eydal, Sigurður Arnar Hannesson, Davíð Hjaltason og Guðmundur Páll Einarsson komust einnig á blað.

Hörður er í 4. sæti með 28 stig en aðeins tvö stig eru í toppsætið og ljóst að baráttan verður gríðarleg í síðustu leikjunum.

Reynir H. er með 9 stig í 6. sæti og á ekki möguleika á að komast í úrslitakeppnina.
Athugasemdir
banner
banner