Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 29. september 2022 21:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Klopp gerði grín af Tsimikas: Hvað þarf ég að borga til að klippa þetta?
Tsimikas í leik með Grikklandi í vikunni
Tsimikas í leik með Grikklandi í vikunni
Mynd: EPA

Kostas Tsimikas hefur fengið mörg tækifæri á þessari leiktíð en hann hefur þegar spilað sex leiki það sem af er. Hann hefur verið varaskeifa fyrir Andy Robertson undanfarin ár.


Tsimikas mætti á æfingu með nýja hárgreiðslu eftir landsleikjahléið. Hann var kominn með snúð (e. Manbun) en Darwin Nunez leikmaður liðsins er með þannig greiðslu.

Jurgen Klopp stjóri liðsins gerði létt grín af Tsimikas.

„Hversu mikið þarf ég að borga til að klippa þetta af? Fyrst hélt ég að Darwin hafði minnkað," sagði Klopp.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner