Fotbolti.net
29.09.26 - 17:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Gervisamningar fyrir 900 milljónir punda

Frá Etihad-leikvanginum, heimavelli Manchester City.

Frá Etihad-leikvanginum, heimavelli Manchester City.

Canon

Mynd: EPA

Eins og fram hefur komið þá staðfesti enska úrvalsdeildin niðurstöðu í máli Manchester City núna áðan og birti á sama tíma 40 blaðsíðna dómsorð.
Enska úrvalsdeildin staðfestir niðurstöðuna
TENGT EFNI

Enska úrvalsdeildin staðfestir niðurstöðuna

David Ornstein, blaðamaður The Athletic, sagði frá því síðasta föstudag að City hefði verið fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum en í tilkynningu ensku úrvalsdeildarinnar segir að félagið hafi verið fundið sekt í „öllum ákæruliðum".

Félagið hefur rétt til að áfrýja niðurstöðu óháðu nefndarinnar og hefur frest til föstudagsins 2. október til að nýta þann rétt.

Það er mjög athyglisvert að fara yfir dóminn en mögulega er það athyglisverðasta þegar fjallað er um að Manchester City hafi blásið upp tekjur sínar og dregið úr kostnaði um meira en 900 milljónir punda á tímabilinu sem málið nær yfir.

Óháða nefndin komst að því að City hefði gert „gervisamninga“ við fjölda styrktaraðila sem voru hluti af fyrirkomulagi þar sem viðkomandi fyrirtæki greiddu aðeins hluta af samningsbundnum styrktarfjárhæðum. Afgangurinn var fjármagnaður af Abu Dhabi United Group Investment & Development Ltd (ADUG), sem á félagið.

Samkvæmt niðurstöðunni voru einnig gerðir aðrir „gervisamningar“, fjármagnaðir af eigendunum, sem gerðu City kleift að skrá lægri rekstrarkostnað en raun bar vitni. Þar að auki var gerður „gervisamningur“ við Fordham, fyrirtæki sem keypti ímyndarrétt leikmanna City, og var sá samningur einnig fjármagnaður af ADUG.

Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að tilgangur fyrirkomulagsins hefði verið að blása tekjur félagsins upp og lækka kostnað um meira en 900 milljónir punda til þess að félagið virtist uppfylla fjármálareglur. Afleiðingin var sú að City skilaði inn röngum fjárhagsupplýsingum og leyndi raunverulegri fjárhagsstöðu fyrir endurskoðendum og eftirlitsaðilum.

Hægt er að lesa dóminn í heild sinni með því að smella hérna.
Gervisamningar fyrir 900 milljónir punda
Canon

Mynd: EPA

Sheikh Mansour, eigandi Manchester City.

Sheikh Mansour, eigandi Manchester City.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.